Ertu að leita að fróðum, skemmtilegum og orkumiklum fyrirlesara til að tala um markaðsmál?
Viltu fá einhvern til að kenna markaðsfræðin á skemmtilegan hátt sem nær til fólks?
Maður á kannski ekki að vera að monta sig, en fyrri reynsla sem leik-og söngkona kemur sér afar vel þegar kemur að kennslu og fyrirlestrum. Hvort sem þú ert að leita að styttra eða lengra erindi eða vinnustofum, sendu mér línu hér fyrir neðan. ;)
Ég hef talað og kennt fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana svo sem Endurmenntun HÍ, Nýsköpunarmiðstöð, Hönnunarmiðstöð, Innovation House, Norræna húsið, Icelandic Startups, Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, SKÝ (Skýrslutæknifélag Íslands), Startup Weekend, Startup Reykjavík, Startup Energy, FKA, Dokkuna, MSS, Austurbrú, Fræðslunetið o.fl.
Meðal þess sem ég hef talað um og kennt eru stefnumótun markaðsmála, branding, markaðssetning á netinu, efnismarkaðssetning, markaðssetning á samfélagsmiðlum og skæruliðamarkaðssetning.

Þóranna kenndi markaðsfræðihluta námskeiðsins Brautargengis á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, þegar ég sá um það nám. Hún lagði mikla áherslu á þarfir smærri aðila og markaðssetningu á samfélagsmiðlum. Hún fylgist altaf mjög vel með því sem er nýjast hverju sinni í markaðsmálum og efnið hennar gagnaðist einstaklega vel.
- Bjarnheiður Jóhannsdóttir, fyrrverandi verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands